Terms of service
Seljandi er Verslunin Jata, kt. 130686-1399, vsk númer 80790.
Verslunin Jata er til húsa í Hátúni 2, 105 Reykjavík (hús Fíladelfíu).
Opnunartími í verslun okkar í Hátúni er sem hér segir:
Þriðjudaga-föstudaga frá 10-13 og frá 16-18 á þriðjudögum.
Eftir samkomur hjá Fíladelfíu á sunnudögum og fimmtudagskvöldum.
Ef verslunin er opin á öðrum tímum er það auglýst á samfélagsmiðlum.
Netfangið okkar er versluninjata@versluninjata.is
Á opnunartíma er hægt að hringja í síma 53 54 700 (skrifstofa Fíladelfíu).
Einnig má senda okkur tölvupóst á versluninjata@versluninjata.is eða skilaboð í gegnum Facebook – www.facebook.com/versluninjata
Greiðslur
Hægt er að greiða með millifærslu inn á reikninginn okkar.
Einnig er hægt að greiða með Visa-og Mastercard í gegnum greiðsluvef Borgunar.

Vöruskil
Hægt er að skila vöru innan 14 daga frá pöntun. Kaupandi getur afturkallað pöntun sér að kostnaðarlausu ef tafir verða á afgreiðslu. Ef varan uppfyllir ekki væntingar kaupanda getur kaupandi skilað vörunni innan 14 daga. Ath. að varan þarf að vera ónotuð og í upprunalegri pakkningu. Við endurgreiðum vöruna innan 10 daga frá því að við fáum hana í hendur. Sendingarkostnaður er ekki endurgreiddur. Vinsamlega sendið tölvupóst á netfangið versluninjata@versluninjata.is áður en vöru er skilað.
Inneignarnótur
Við vöruskil á viðskiptavinur rétt á að fá afhenta inneignarnótu ef ný vara er ekki tekin upp í þá vöru sem skilað er. Óski viðskiptavinur eftir því endurgreiðum við vöruna á því verði sem hún var keypt á við vöruskil, hafi varan ekki verið gölluð er sendingarkostnaður ekki endurgreiddur.
Kvartanir
Sé varan gölluð eða kaupandi á einhvern hátt óánægður með kaupin hvetjum við kaupanda til að hafa samband við okkur svo við getum leyst málið í sameiningu. Sé gallaðri vöru skilað fæst sendingarkostnaður endurgreiddur. Það er okkur mikilvægt að viðskiptavinir okkar séu ánægðir og því hvetjum við viðskiptavini okkar til að hafa samband telji þeir að vara eða þjónusta hafi verið ófullnægjandi.
Aðrar spurningar
Ef þú hefur fleiri spurningar, ekki hika við að hafa samband.
Sendu tölvupóst á versluninjata@versluninjata.is eða sendu okkar skilaboð á facebook.com/versluninjata
Einnig er hægt að hringja í síma 5354700 (Fíladelfía) á opnunartíma verslunarinnar.